This is a tumblelog, kinda like a blog but with short-form, mixed-media posts with stuff I like. Scroll down a bit to start reading, or a bit more to read more about me.
Hafragrautur - upgrade
Ódýr orkusprengja full ad vítamínum og steinefnun er hafragrautur.
Þegar þú veist að þú þarft tonn af orku fyrir próf eða mjög krefjabdi vinnu finnst mér gott að fá mér hafragraut.
Svona geri ég minn til að “réttlæta” hann fyrir mér hvað mest þvi hafragrautur er eitthvað sem ég hef hingað til ekki flokkað undir paleo eða svoleiðis nálgun á matarræði
———-
2 bollar tröllahafrar
1 bolli eitthvað clean granóla/múslí með fræjum og hnetun
1 teskeið möndlusmjör
Kanill
1 bolli af hreinu prótíni
Smá 6% mjólk
———
Grjótharður morgunmatur.
Ítalskur.
Fórum út að borða í gær og fengum frábæran mat, forrétturinn samanstóð af allskonar þurkuðu kjöti, ferskum mozzarella, sterkum þurrum osti, sardínum, þurkuðum tómat, þistilhjörtum og marineðaðri miðjarðarhafs papriku. Allt þetta fékk að njóta helling af hvítlauksolíu og rauðvíni hússins.
Aðalrétturinn var nautasteik með bakaðri kartöflu, aspas og butternut squash. (þýðing?)
Frábært
Morgunmatur - hádegismatur
Vaknaði seint og var að finna fyrir almennri þreytu í likamanum.
Svangur og ákvað að reyna fylla VEL á tankinn.
6 egg
Tomatur
Spinat
Afgangar frá kvöldmatnum í gær sem var nautakjötsbitar með grillsósu, soðið brokkolí með bræddum feta og mozzarella osti.
Fjall af mat - 4 timum seinna enþá saddur:)
Rósirnar að gera góða hluti á heimilinu í Harlem.
5-5-5 hnébeygja
500m róður - 40 squats - 30 magaæfingar - 20 armbeygjur - 10 upphýfingar
Hvíla 10min /
Endurtaka 3x
Fékk nýja skó í dag, lyftingarakó. Hef alltaf verið á móti svoleiðis en var einum of sannfærður eftir tal við einn félaga minn um notagildi þeirra. Það reyndist vera satt. Leið mjög vel og þunginn fer akkurat á rétta staði hjá mér. Ég tók video að framan, aftan og á hlið til að sjá muninn hjá mér og það var allt annað að sjá hné og dýpt á beygjunni. Endaði að taka 135kg 5x sem ég held að ég hafi ekki gert áður og leið mér mjög solid með allar lyfturnar.
Baseline æfingi var erfiðari en ég hélt. Öll 3 skipti var ég að ströggla við hnébeygjuna. Tímar: 3.42 - 3.40 - 3.46
Teygjur og fimleika æfingar (handstöður, labba á höndum, æfingar í hringjum)
Upphitun: ekki á tíma
3x
10 handstöðupressur
10 ghd bakfettur
10sek L hold
Cindy Variation-
(5 upphýfingar 10 armbeygjur 15 hnébeygjur)
1min on
1min hvíld
10x
Frekar stífur eftir gærdaginn en leið vel og hlakkaði til að prufa þetta cindy dæmi. Fimleikastöffið gengur vel, byrjaður að geta labbað frekar öruggt á höndum 20metra. Er að vinna í að ná að vera á einni hendi núna og að ná handstöðupressu frístandandi. Gaman að leika sér í hringjunum. Ekkert unnið i muscle up variations og gaman að æfa það. Teygði vel með gúmmi teygju á lötsum, öxlum og slatta eyddi slatta tíma í að liðka ökklann á mér við.
Cindy gekk vel, ég fann að eftir hvern hring eftir hring 5 var hjartslátturinn alveg jacked up en ekkert muscle fail á neinum af hreyfingunum. Náði að halda sama hraða í gegnum alla hringina. Náði að setja á yfirsnúning síðust 2 og endaði í 20hringjum.
Ætlaði að gera þetta í 10kg vesti en fann ekkert sem var nógu fast á mér.
Matur var betri í dag en í gær.
Morgunmatur:
Hafragrautur með möndlusmjöri, bláberjum og prótein dufti
Hádegismatur:
Laxasúpa með kókosmjólk og fullt af grænmeti.
Kvöldmatur:
Tveir hamnorgarar (án brauðs) úr organic grasfed kjöti (elevation burger)
Double Unders
10-20-30.. Until fail með 10sek pásu
Deadlift 5-5-5
500m róður 1-1-1
3-4min rest
5-4-3
Bench press
Öflugur dagur í dag. Náði uppí 60 í double unders. Frábær upphitunarleið. Endaði í 165 kg í deadlifti með focus á gott form og ekkert að ströggla, öruggar liftur, leið vel.
Róðurinn var brutal. Tímarnir voru 1.30 - 1.31 - 1.32 og grillaður í löppunum eftir það.
Datt svo í bekkpressu með Kevin félaga og endaði í að taka 110kg öll settin. Strögglaði aðeins á öllum síðustu lyftunum en annars frekar solid.
Hlakka til að taka cindy variation á morgun.
Matur í dag var ekkert spes. Borðaði of lítið of sjaldan. Þarf að fara plana mig betur.
Sáttur.